Nýjustu fréttir

  • Útflutningsleyfi fyrir allt kjöt til allra Evrópulanda

    Ingvar Már Gíslason og Sigurgeir Höskuldsson.
    Norðlenska er fyrsta kjötvinnslan á Íslandi sem fær útflutningsleyfi fyrir allar tegundir kjötvara til allra landa Evrópu. Leyfið fékkst í morgun og strax eftir helgi verður sendur þorramatur til Íslendinga á hinum Norðurlöndunum sem bíða þess lostætis með óþreyju! Fram að þessu hefur þurft sérstakt leyfi til að senda þorramat utan, þar með talinn súrmatinn góða, og víst að margir kætast vegna þess að nú verður einfaldara að koma þessari vinsælu vöru til ættingja og vina erlendis. Lesa meira

  • Norðlenska selur tugi tonna af þorramat

    Jón Knútsson sker hrútspunga.

    Framleiðsla og sala á þorramat gengur vel og salan stefnir í að vera á svipuðu róli og í fyrra, að sögn Eggerts Sigmundssonar vinnslustjóra Norðlenska á Akureyri. Á síðasta ári var metsala í súrmeti þannig að ljóst er að landinn hrífst sem fyrr af þorrakræsingunum.

    Lesa meira

  • Áramótakveðja frá Norðlenska


    Þegar líður að áramótum er gott að líta yfir farinn veg, staldra við og meta árangurinn. Rekstur Norðlenska er viðunandi  árið 2011. Segja má að samhent lið eigenda, starfsmanna og stjórnamanna hafi náð góðum árangri í rekstri fyrirtækisins við erfið skilyrði. Það er því með nokkurri bjartsýni sem menn fara inn í nýtt rekstrarár, með von um að nú hafi botninum verið náð og hlutirnir séu farnir að snúast til betri vegar.

    Lesa meira

  • Dásamlegur hádegismatur

    Regína matráður og Eggert gestakokkur.

    Í dag var starfsfólki Norðlenska á Akureyri boðið upp á nautakjöt og sætar kartöflur í hádegismat. Með því var borin fram ekta bernaise sósa sem vinnslustjórinn, Eggert H. Sigmundsson, bjó til, en hann var „gestakokkur“ hjá Regínu matráði.

    Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning